Tilveran mín!!

Lindublogg

28.10.2007 16:12:20 / linda

Ætla að prófa..

Að færa bloggið yfir á 123. slóðin á síðuna er 123.is/glindab endilega kíkið þangað :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 12:45:12 / linda

Jólin nálgast!

Eins og kunningjakona mín bennti mér á þá eru bara 58 dagar í jólin :S en það er allt í lagi því maður er nú byrjaður að kaupa jólagjafirnar og er í fríi í nóvember líka, þannig að maður verður aldrei þessu vannt að dunda við að gera hreint og baka smákökur og svoleiðis, sem mér finnst ekki leiðinlegt, þ.e. að baka, hitt er alveg drep :|

En núna í vikunni sem er að líða er búið að vera brjálað að gera hjá mér, aldrei þessu vannt og að sjálfsögðu þurfti allt að vera á sama tíma. Ég var semsagt í innilotu í skólanum sem var bara frábært, gaman að hitta alla og svoleiðis, nema að maður hálfdottaði í aðferðafræðinni, og hefði steinsofnað ef kennarinn hefði ekki reitt af sér brandara eins og hún gerði :D Veit semsagt að námsefnið er svolítið svæfandi. Að sjálfsögðu gat ég ekki verið alla tímana í skólanum, því við áttum líka að mæta til læknis. Maður er búin að sitja heima síðan í september og loksins þegar maður þarf að gera eitthvað kemur allt í einu! En við ræddum semsagt við þennan lækni, fengum helling af upplýsingum hjá henni og hún gat sagt okkur margt sem við vissum ekki, svo vorum við send með bunka af beiðnum yfir götuna og í blóðrannsóknarstofuna 8| Ég tek það bara fram og viðurkenni það fúslega að ég er algjör kelling þegar kemur að svona málum, ekki það að þetta sé vont en þetta er svo ógeðslegt 8| ég þoli bara ekki nálar og að sjá blóð renna í eitthverri slöngu og glösum og svona :S ég veit ég er algjör kelling, þess vegna var það ekki alveg fyrir mig að rétta konunni 4 beiðnir  fyrir mig, svo þegar konan byrjaði að týna til glösin, hljóp ég næstum því út, ef það hefði ekki verið að rannsaka þetta, mér í hag hefði ég flúið. Helgi slapp við tvö glös og stóð svo glottandi meðan fyllt var á mín 9 ! Konan sem tók blóðið var alltaf að tauta eitthvað sem ég heyrði ekki, á endanum kom Helga blóðtökukona og hjálpaði henni með því að rétta henni glösin, þeir sem þekkja mig vita að ég er af fiskaætt og því með kallt blóð og mjög lítið blóðrennsli og það tók sinn tíma að fylla á þetta, á endanum losaði hun bandið og tautaði eitthvað, ég spurði konugreyið hvort allt blóðið væri búið en fékk svosem ekkert svar við því :P Niðurstöðurnar úr þessu öllu saman eru svo væntanlegar á næstu vikum og vonandi að það komi eitthvað gott út úr þeim sem auðvelt er að laga, en við fengum allavega að vita það að manninum mínum tókst það sem hann hélt að væri alveg útilokað fyrir hann að geta, hann gat semsagt búið til stelpu, en við eigum semsagt engla af báðum kynum.

Við nýttum líka bæjarferðirnar mínar til þess að kaupa okkur nýjan sófa, ekki veitti af, var alveg að fara að æla á þennan ljóta hornsófa sem við fengum gefins þegar við fluttum, hann var ekki bara ljótur, heldur var farinn að rifna líka, þannig að við fjárfestum í nýjum fyrir peningin sem við fengum í afmælisgjöf. Svo er bílinn okkar loksins búinn í viðgerð, hann bara hrundi greyið, enda alveg kominn tími á hann, ég var svo heppinn að mamma var í farbanni heima eftir aðgerðina og mátti ekkert keyra þannig að hún lánaði okkur sinn bíl.

en jæja verð víst að halda áfram að læra, er að skrifa ritdóm í aðferðafræði, ekki skemmt :|

Hvernig væri nú að kvitta fyrir komuna !!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 14:26:15 / linda

Spurningar!!

Halló.

Maður situr þessar vikurnar, komin með rasssæri og legusár og hlustar á talglærur :| það er nú ekki það skemmtilegasta sem maður gerir get ég sagt ykkur, því maður verður eins og ofvirkur krakki, kanski liður í því að maður getur sett sig í þeirra spor, það er nátturlega spurning, þar sem maður á örugglega eftir að koma til með að vinna mikið með þeim :D en það er allavega ekki gaman að sitja og stara á tölvuskjá og hlusta á eitthvern tala í 80 mínútur sem maður sér ekki og vá hvað maður fera að hugsa um allt annað sem mann langar að gera og dettur oft út 8) eina að mér finnst geðröskun mjög ahugasöm en í aðferðafræði er ég eitthversstaðar allt annars staðar 8) En ég er að vera búin með hljóðglærupakkann þannig að þetta er að hafast.

Við fjölskyldan áttum frábæra helgi saman. Kallinn var að vinna á laugardaginn og þá tókum við Brynjar kósiheit, kúrðum saman og horfðum á spiderman 3, sem er bara rosa góð. hann fór svo  í sund með vini sínum og á meðan undirbjó ég frábært kvöld fyrir okkur. Ég var nefnilega búin að segja Helga að ég ætlaði að elda eitthvað gott um kvöldið, hann tók það fyrir að eg myndi elda folaldakjöt og eitthvað svona svolítið fínt :) en ég var allan seinnipartinn að elda. Eldaði sko þriggja rétta máltíð, hafði sveppasúpu ( ógeðslega góða) sem er með rækjum í, í forrétt, Bayonesskinku i aðalrett með sveppasósu, eplasallati og fínerýi í meðlæti og svo bakaði ég epla/súkkulaðiköku í eftirrett. Maður fór svo í gróðurhúsið og klippti rósir og Brynjar kveikti á öllum kertum sem hann fann í húsinu. Helgi fékk svo rauðvín með matnum sem Brynjar sá um að skenkja og við Cider. Svo átu allir á sig gat og lágum svo afvelta í sófanum á eftir og horfðum á sjónvarpið. Var bara gaman að koma kallinum sínum svona á óvart, hann var ekkert smá hissa og glaður og nátturlega fílaði þetta í botn :D næst verður svo dekrað við Brynjar, þá verður samt örugglega steiktur fiskur eða pizza eða eitthvað sem honum finnst gott, en er svo mikil tilbreyting að kveikja á kertum og borða inni í stofu með sparistellið og gaman þegar allir eru með :haha: Á sunnudaginn lágum við svo bara öll í leti, held meira að segja að ekkert af okkur hafi klætt sig, er nauðsynlegt að taka svoleiðis daga og rosa langt síðan við gerðum það síðast.

Hún Emma okkar er búin að vera á lóðaríi undanfarið, sem er kanski ekki frásögum færandi nema að Brynjar er búinn að vera að spyrja aðeins út í þetta lóðarí og hvað það þýði og svoleiðis, nema þegar við vorum að útskyra fyrir honum hvað það þýddi og að hún lóðaði c.a tvisvar á ári og þá gæti hún eignast hvolpa að þá var ég spurð í framhaldi hvort að ég færi ekki líka á lóðarí og hvort alla menn langaði þá líka til að eignast börn með mér :haha: :haha: vakti mikla lukku hjá Helga þessi spurning og fékk hann að sjálfsögðu það svar að tvisvar á ári þyrfti hann að berja helling af köllum í burtu sem biðu í röðum fyrir utan húsið, því ég væri á lóðaríi. En það er búið að ýtreka fyrir honum að passa Emmu, og fara ekki út með hana einn, því að ef það kæmu karlhundar vildu þeir bara fara á hana og voða lítið hægt að stoppa þá :P

Höfuðverkurinn með afmælisgjöf fyrir Brynjar var settur á pásu, það var heljarinnar bekkjarpartý hérna á föstudagskvöldið og svaka stuð. Við héldum svo smá kaffiboð fyrir fjölskylduna á laugardeginum, hann vildi ekkert svaka afmæli þannig að það var bara fjölskyldan sem mætti. Drengurinn fékk samt 40.000 kr í afmælisgjöf allt í allt ( bæði úr bekkjar og kaffiboðinu) og keypti sér gsm síma og spiderman 3 myndina og lagði svo restina inn í banka. Við gáfum honum peysu og transformerkall og svo á hann að fá að velja sér restina seinna, eitthvað sem er ekki kall og eitthvað sem honum langar mikið í ;)

En jæja ætla að halda áfram að læra, Sendi sérstakar batnaðarkveðjur til hennar Ástu minnar sem lennti í bílslysi í gær og til hennar mömmu minnar sem var í brjósklosaðgerð um daginn.


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 08:49:12 / linda

Jamm og jei

Ég er í svo miklu sjokki þessa dagana að það er ekki eðlilegt! Sonur minn á nefnilega stórafmæli á sunnudaginn, guttinn bara að verða 10 ára!!! Man ennþá hvað það var rosalega merkilegur áfangi þegar ég varð 10 ára, manni fannst maður bara fullorðinn!! Kominn með tvo stafi ! Honum finnst hann nú voða fullorðinn lika guttanum, er ekkert alltaf sáttur við að ég ráði yfir honum og svona og að hann þurfi að gera eins og mamma hans segir :S En þar sem hann á besu og skemmtilegustu mömmu í heimi ( maður er svo dómbær á það nefnilega :D) að þá erum við voða góðir vinir.  Það eru líka svo miklar breytingar á honum, hann hefur alltaf haft mjög sterkar skoðanir á því í hverju hann vilji vera og klippingu og þessháttar, það hefur samt yfirleitt verið lubbi og joggarinn, eitthvað þægilegt semsagt og ekkert vesen. Núna undanfarið hefur hann alveg snúist við, það er farið í gallabuxum í skólann, sem ég þurftir að grenja í honum að fara í afmæli í fyrir nokkrum árum, ef hann sér flottar peysur, skó eða buxur út í búð biður hann um svoleiðis, er farinn að skoða föt semsagt, ekki strauið tekið beint inn í dótadeild, fer ekki út nema hafa gel í hárinu og er farinn að tala óheyrilega mikið um stelpur og er oft að spá aðeins of mikið í sambandi okkar Helga og hvað við erum að gera og við fáum alveg helling af pælingum og spurningum út í hina og þessa hluti, sem maður er oft í vandræðum með að svara :^)

En Aðal höfuðverkurinn þessa daga er samt hvað gefa eigi prinsinum í afmælisgjöf 8| við foreldranir erum gjörsamlega búin að standa á gati undanfarnar þrjár vikur við að reyna að hugsa um eitthvað til að gefa honum, því með þessum stórviðburði að ná tveggja stafa tölu þá vandast málið alveg helling. Hann er nefnilega ekki mikið að leika sér með dót ennþá, er alltaf með kalla æði og núna er það Transformers ( fyndið að guttinn er að byrja að leika sér með bíla í fyrsta skipti núna, en þá eru það nátturlega bílar sem breytast í kalla ;) ) Hann á Playstation tölvu og helling af leikjum, á sjónvarp og græur og allt sem mögulega væri hægt að gefa honum. Hann langar aftur á móti í Playstation litlu tölvuna og fifa 08 leikinn, sem ég er bara of græn til að skilja og endilega ef eitthver tæknifroður les þetta gæti útskýrt fyrir mér, hvað maður eigi að gera við litla playstation þegar hann á stóra tölvu, og hver munurinn á Fifa 06, 07 og 08 sé :$  En ætla allavega að koma í bæinn á eftir og reyna að finna út úr þessu öllusaman og finna flotta gjöf fyrir son minn.

Annars er allt fínt að frétta af mér. Er bara heima að dóla mér og læra eins og brjáluð manneskja, en út af því sem koma átti er ég samt í færri einingum en vanalega sem er mjög óhenntugt núna þar sem eg verð í fríi út oktober og jafnvel út nóvember líka. En þá allavega nógur tími fyrir sjálfan mig og að taka til í húsinu mínu og hugsa um Brynjar minn og Emmuna okkar. Er semsagt að reyna að hafa nóg fyrir stafni til að tapa ekki geðheilsunni :$ Annars verður líka nó að gera hjá okkur í læknaheimsóknum í mánuðunum og svo að heimsækja alla vini og vandamenn sem hafa setið á hakanum hingað til og er ég byrjuð á þeim lista :haha: sem er bara æðislegt. Svo var nú líka verið að biðja mig að vera í stjórn íþróttafélags fatlaðra á suðurlandi sem ég sagði að sjálfsögðu já við og hlakka mikið til að mæta á fyrsta fundinn.

En jæja ætla að fara að læra í fötlunum, geðröskunum og taugasjúkdómum sem er uppáhaldsfagið mitt :haha:

Bið að heilsa öllum og takk fyrir allar hringingarnar og stuðninginn.


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 20:06:54 / linda

Hver er tilgangurinn!!

Já ég fattaði það áðan hver tilgangurinn af hinum og þessum hlutum sem maður var látinn læra í grunnskóla væri. T.d öll þessi ljóð sem maður þurfti að læra utan af og allar stærðfræðiaðgerðinar sem hefur verið troðið inn í hausinn á manni í gegnum tíðina. Ég hef semsagt loksins þurft að nota þetta undanfarið. Tilgangurinn er semsagt sá að maður getur hjálpað börnunum sínum þegar þau eru að læra þessa sömu hluti!!! Hef allavega ekki þurft þá hingað til :D

En annars er rosa gott að frétta af okkur. Við höfum loksins ákveðið að halda upp á stórafmælin okkar um helgina, verður matarboð fyrir foreldra og systkini og svo heljarinnar partý fyrir vini og vandamenn, vonandi að við gleymum engum :S en það verða allavega léttar veitingar í boði og helling af drykkjarföngum og verður bara gaman.

Pallasmíðin gengur bara vonum framar, reyndar er hún í fullum gangi núna og verður pallurinn tilbúinn fyrir helgina, þannig að borðið og stólarnir sem við fengum í afmælisgjöf verður komið á sinn stað og loksins hægt að fara að nota þau. Helgin leið allt of hratt, finnst að það ætti að fara að lengja þessar elskur, en við vorum heima við á laugardaginn, kallinn í pallagerð og strákarnir allir að hjálpa honum, þeir komu svo allir inn fokheldir og rétt það, voru smúlaðir og settir í bað. Á sunnudaginn átti elsku mamma mín afmæli, við brunuðum því í bæinn í veislu til hennar, vorum þar fram á kvöldmat og borðuðum helling af góðum kökum. Við kíktum svo i heimsókn til tengdapabba og Ingunnar. Við enduðum í mat hjá þeim, fengum sænska súpu sem var voða góð, nema ekki mikið pláss eftir allt kökuátið.

Jæja bið að heilsa í bili

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 18:16:59 / linda

Sest aftur á skólabekk.

Jabbs maður er í skólanum þessa vikuna, sem er bara rosalega fínt, gaman að hitta alla aftur og svona. Það er samt hundleiðinlegt að keyra í bæinn á hverjum degin, skil ekki hvernig maðurinn minn nennir þessu, en vá hvað maður er feginn að búa á Selfossi þegar maður situr fastur í bílaröðum á leiðinni í skólann á morgnanna, VÁ hvað ég sakna þess ekki og alls stressins í kringum umferðina!!!! Annars er búið að breyta svo miklu í skólanum núna, allir áfangar orðnir 5 eininga, var svo fínt að vera með 12-13 einingar í skólanum, að vinna og svo með heimilið, finnst eiginlega of mikið að vera með 15 einingar og í vinnu, þannig að þessa önn og næstu ætla ég að vera með 10 einingar og taka því frekar áfram með trompi.

Það var helling að gera hjá mér um helgina. Maður gerðist svo frægur að fara á Útlagann á Flúðum á laugardaginn, en þangað hafði ég aldrei komið áður, fékk nú smá skot á því að ég vissi ekki hvar útlaginn var, en hei veit það núna :D Hún Sæunn mín var að halda upp á 25 ára afmælið sitt, og að sjálfsögðu mætti maður til að samgleðjast henni, afmælið breyttist svo bara í brúðkaupsveislu því í miðju afmælinu tilkynntu skötuhjúin að þau hefðu farið og gift sig í laumi á miðvikudaginn seinasta, allir héldu að þetta væri eitthvað grín en neibb þeim var fúlasta alvara, verð að segja að ég er rosalega stolt af ykkur að geta þagað yfir þessu í nokkra daga ! Úr afmælis/brúðkaupsveislunni kíkti ég aðeins í innflutningspartý hjá Halldóru og Sævari, sem voru að kaupa sér frábæra íbúð og endurbættu hana rosa vel. Maður var reyndar ekkert voða lengi, enda kominn háttatími og maður alveg þreyttur fyrir allan peninginn þessa dagana. En hefði alveg verið til í að skella mér með partýgestum á ball, verður bara næst :D

Sunnudagurinn fór líka í veislur, byrjuðum á að fara í frábært afmæli til hennar Ástu minnar, en hún var að halda upp á afmæli þeirra Sólons og Sóleyar, rosa gaman og helling af góðum mat!

Við enduðum svo í matarboði með fjölskyldu Helga, var voða gaman að hittast öll saman, fengum mjög góðan mat og svona. Kíktum aðeins til Jóa og Guggu líka á eftir og fengum helling af dóti hjá þeim sem mun nýtast okkur í febrúar. Gott að eiga góða að.

En jæja þýðir ekki að slugsast við að ryksuga lengur, ætla að finna upp ryksugu sem fylgir hundninum mínum eftir, hún er bara að fara úr hárum núna, ekki gaman.

Annars er hún Mí okkar týnd, hún hefur ekki komið heim ( á heima í Kópavoginum) í nokkra daga, endilega hafið samband ef þið hafið séð hana


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 17:12:21 / linda

Er ekki kominn tími á nýtt blogg????

Get nú ekki sagt að ég sé sú virkasta í bloggheiminum :S en hva!!!

Það hefur nú margt gerst síðan ég álpaðist til að skrifa hérna inn seinast, enda var það í júní held ég 8) Við áttum ágætt sumarfrí ég og guttarnir allir, gerðum nú ekkert mjög mikið þar sem kallinn var að vinna í allt sumar, tók sér nú reyndar fjagra daga frí nú um daginn! En það er bara svo brjálað að gera hjá þeim félögunum að meira sumarfrí var ekki á döfunni þetta sumarið, eins gott að það verði fleiri dagar næsta sumar :S

Við Brynjar fórum nokkra daga á Kirkjuból í júlí og endurhlóðum batteríin okkar, enda enginn staður betri til þess. Helgi var að veiða fyrir vestan og lögðumst við hin bara út líka, vorum hvorugt í símasambandi, var mjög fínt að hvíla sig á öllu, kallinum líka, þó maður hafi nú saknað þessarar elsku ;)

Við vorum svo á ættarmóti um seinustu helgi hjá fjölskyldu Helga. þetta er annað mótið sem ég mæti á og það var bara rosalega gaman, mikið stuð, mikið sungið og brasað, strákarnir skemmtu ser lika alveg konunglega, var trampolin á staðnum sem þeir bjuggu í og svo auðvitað heitir pottar, svo var hópferð í sund á sunnudeginum, sem ég missti reyndar af því maður er svo mikið að hugsa um alla gaurana í hópnum og að taka sunddót fyrir þá, að ég steingleymdi mínum eigin 8) en maður lagði sig bara í bílnum á meðan og hafði það huggó.

Það var svo brunað beint í afmæli í Keflavíkinni eftir sundið og étið á sig gat þar, bara gott.

En skólinn er að skella á aftur og vinnan að komast í rétt horf, allir að koma úr sumarfríi og svona. Hlakka til þegar rútinan byrjar aftur, Bynjar í skólann og svona, hann er annars búinn að vera rosa duglegur að leika sér eftir að ég fór að vinna aftur, fór reyndar og var hjá Gumma og Evu í nokkra daga og skemmti sér alveg konunglega, vildi bara flytja i sveit á eftir, enda hvolpar á staðnum og hann fékk að keyra fjórhjólið með Gumma, fara á hestbak og fleira. Hann stakk svo líka af með mömmu á Patró þar sem hann er líka í góðu yfirlæti.

Í dag liggur maður nú samt heima með flensu, fékk hita í nótt, hausverk og beinverki, Helgi heldur samt að þetta séu bara samúðarverkir með honum, hann missteig sig nefnilega í gær, kom heim rétt á eftir mér og gat ekki stigið í fótinn, eftir mikla kælingu og verkjatöflur sannfærði ég hann um að kíkja upp á spítala, hann er sem betur fer ekki brotinn en með trosnað liðband og þrefalda löpp, þannig að við skötuhjúin liggjum heima í dag :$

Annars eru miklar fréttir hjá okkur, ætla ekki að segja þær alveg strax en súperforvitnir hafi endilega samband svo ég geti farið að segja frá þessu :haha:

Bið að heilsa í bili, hafið það rosalega gott:D


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 19:20:10 / linda

Í sól og sumaryl

Jabbs er ekkert smá gott veður sem maður er búin að fá í sumarfríinu.

Maður hefur nu bara tekið því með ró, er bara að dúllast með guttunum mínum öllum.

Á fimmtudaginn lögðum við samt land undir fót og tókum hana Hugrúnu okkar með, við lögðumst á sjóinn og fórum til Vestmannaeyja, Brynjar minn fór á miðvikudeginum á Shellmótið og tókum við stefnuna þangað í fyrsta skipti, svolítið fyndið miðað við hvað við fjölskyldan var alltaf rosalega dugleg að ferðast og pabbi nátturlega alltaf að keyra fyrir Vestfjarðarleið og við með hingað og þangað að þá höfum við aldrei farið til eyja. Það var líka svolitið skondið að við Hugrún vissum nátturlega ekkert hvert við vorum að fara. Við fundum þó tjaldstæðið á endanum, skelltum tjaldinu upp og allir að sofa, enda vorum við að tjalda um miðnætti.

Við vorum svo vakin um níuleytið við hersöng Selfyssinga, en við tjölduðum á nýju tjaldstæði við Þórsheimilið, þannig að við vorum í stúkusæti við völlinn. Við fórum nátturlega beint að hvetja guttana, enda veitti ekki af, því gengið hafði ekki verið sem best, en að sjálfsögðu fór það batnandi þegar við lukkudýrin komum. Helgi kom svo með rellu frá Bakka um kvöldmatinn, og þá meina ég rellu, var eini farþeginn og fékk útsýnisflug. Brynjari og félögum fór að ganga mikið betur á laugardaginn og skoraði guttinn minn bara tvö mörk. Helgi var eitthvað að segja að þetta væri allt honum að þakka og var hann úthlutaður lukkudýr liðsins :D

Helgi eyjamaður sýndi okkur svo eyjuna, fórum út um allt held eg, engin smá fegurð sem er þarna úti, við skoðuðum líka húsin sem verið er að grafa upp eftir eldgosið, ekkert sma merkilegt hvað þau eru samt heilleg miðað við allt!

En allavega komst B lið selfoss í 8 liða úrslit. Við lögðum svo í hann á sunnudaginn til baka, allir rosalega ánægðir með ferðina. Róbert átti samt gullkorn ferðarinnar, hann settist hliðin á stelpu og pabba hennar í Herjólfi á leiðinni út, sneri sér að stelpunni voða rogginn og sagði: Ég er að fara til Vestmannaeyja, hvert ert þú að fara??? Hann var alveg eins og Pétur Jóhann í thule auglýsingunni!!!

jabbs erum  semsagt að hafa það gott í sumarfríinu og ætlum sko að gera það áfram og vonandi að veðrið verði áfram eins gott!!

helling af myndum úr eyjum inn á síðunum hjá strákunum.


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 13:28:32 / linda

Vika búin af sumarfríinu!!

Vá ætla að biðja um lengingu á sumarfríinu, þetta líður allt of hratt!!

En annars erum við búin að hafa það rosalega gott þennan tíma sem búinn er af fríinu. Erum nú samt búin að vera voðalega roleg og aðallega að slappa af. Helgi skellti sér í hestaferð á fimmtudaginn seinasta og var fram á sunnudag. Við guttarnir höfðum það bara næs bæði í bænum með Hugrúnu og svo hérna heima. Við eiddum 17. júní hérna á Selfossi og var helling að gera fyrir guttana og þeir skemmtu sér alveg rosalega vel. Við brunuðum svo í sveitina, fyrst að ath hvort það væri komið annað folald, og þegar það var ekki komið fórum við austur í Fljótshlíð og hittum Ástu. Kallarnir voru þá bara að klára hestaferðina og við keyrðum með þeim seinasta spottann þ.e. 10 metra :lol: Það var voða gott að sjá þá og strákarnir glaðir að sjá pabba sinn. Brynjar kom svo heim á mánudeginum, er búinn að vera hjá afa sínum og ömmu í sveitinni og svo með pabba sínum.

Við fengum fréttir í gær af nýju folaldi og brunuðum austur í gærkveldi að skoða það, eftir pönnuköku át með ís og jarðaberjum, bara gott :D

Gletta var semsagt köstuð jarpri meri undan Takt frá Tjarnarlandi. Hún var nú ekkert að gera okkur lífið létt, löbbuðum ekkert smá langt til að finna hana og svo þegar við loksins fundum hana fengum við nánast ekkert að skoða folaldið, hún sneri sér allaf að okkur og tók svo bara strauið, en hún gat allavega enn hreyft sig þó hún sé orðin gömul

 

báðar merarnar okkar eru semsagt kastaðar, Móheiður kominn undir hest aftur, en Gletta á að fá frí þó við höfum verið á báðum áttum með það í gær, var ekkert smá flott!

En liggjum öll upp í sófa að horfa á Harry Potter, er helling af nýjum myndum inn á barnalandi


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 16:29:00 / linda

Sumarfríið nálgast!!!

Jabbs það eru bara tveir dagar eftir í vinnunni og svo er maður komin í 5 vikna sumarfrí, sem verður  bara tekið í kósýheit. Það er nú ekki mikið planað hjá okkur þetta sumarið, nema Pollamótið í Eyjum seinustu helgina í júni, svo eru helling af útskirftarveislum og eitt brúðkaup í viðbót í sumar, að ógleymdu afmælispartýinu sem við ætlum að halda í júlí :D

Við skötuhjúin fórum í brúðkaup um seinustu helgi, en Kalli vinur okkar var að giftast Hafdísi sinni. Þetta var mjög fallegt brúðkaup og rosa skemmtileg veisla sem stoð langt fram á nótt. Helling af skemmtiatriðum, mikið dansað og sungið :D Spurningin er hver sé næstur, alltaf svo gaman í brúðkaupum!!!

Ég er búin að fá út úr prófunum og gekk mer bara voðalega vel, ekki að spyrja að því ;) fékk 8,5 á línuna. Þannig að núna er maður bara að lesa og lesa og lesa í öðru en skólabókum, sem maður hefur ekki haft tíma í vetur, enda er ég algjör lestrarhestur manninum minum til mikillar ánægju 8)

Annars erum við búin að vera barnlaus síðan á mánudag, en Brynjar fór norður til ömmu sinnar og afa á föstudaginn og ætlar að vera fram á næstu helgi, en þa erum við að fara norður á Akureyri, því að hún elsku Hugrún mín er að útskrifast sem Hjúkrunarfræðingur á laugardaginn, og ætlar maður nú að heimsækja hana og samgleðjast stúlkunni, enda frábær árangur að vera búin með námið, er svo stolt af þér elskan!!! Við erum bara búin að vera í afslöppun, fórum reyndar austur að kíkja á hestana okkar í gær og sáum þá okkur til mikillar gleði að það var búið að fjölga í hópnum, Móheiður okkar er semsagt köstuð og brúnstjörnóttri meri í þetta skiptið, við vorum ekkert smá ánægð, ´hún kom með hest í fyrra og var draumurinn að fá meri undan henni. Þannig að maðurinn minn sveif um túnið í gær, en folaldið er undan Móheiði okkar og Takti frá Tjarnarlandi.

Taktur

En hafið það öll rosa gott, ég ætla allavega að hafa það meiriháttar í kvöld, ætlum að grilla humar og hafa það næs.

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 11:02:46 / linda

Ok

Er búin að læra og læra og fékk eiginlega ógeð af tölvunni, þannig að henni var bara lagt í nokkra daga.

En mér gekk voða vel í prófunum, þangað til annað kemur í ljós allavega :D Vona að ég fái rosa gott úr prófunum og ritgerðunum :D

Ég er svo búin að vera bara í leti, og að koma húsinu í sæmilegt horf aftur, sagði svo kallinum mínum að ég væri orðin leið á að búa eins og við værum nýflutt, fórum í Ikea keyptum myndaramma og dót, ( ætlaði reyndar líka að kaupa gardínur í sólskálann, svo nágrannarnir þurfi ekki að horfa á okkur striplast lengur) en þær voru ekki til, keypti borð í forstofuna og setti upp spegil þar. Þannig að það er orðið voða fínt hjá okkur, og ég setti þetta allt saman sjálf ;) svo stolt af mér. Á óskalistanum er líka nýr hornsófi og nýtt borðstofuborð, ég fékk nefnilega pening frá mömmu og pabba í afmælisgjöf og vona að sem flestir gefi okkur bara pening líka, þannig að við getum keypt það sem okkur langar í, vanntar nefnilega svo stóra hluti :S

Annars er gott að frétta af okkur. Kallinn minn var veikur í seinustu viku og bara næs að hafa hann heima þegar maður kom heim úr vinnunni. Við fórum samt út að borða með Ástu minni og Róberti á laugardeginum, fórum á Tapas og fengum frábæran mat, ekkert smá góðann, mæli alveg með þeim stað og ætla sko aftur þangað. Á sunnudaginn var Helgi að hjálpa pabba sínum og Ingunni að mála, við Brynjar dóluðum okkur saman á meðan, hann fór svo í bíó með vini sínum og ég að kaupa meira fyrir húsið mitt :haha:

En jæja bara að setja inn smá fréttir. Fríður er til í Styrk, út að labba eða hjóla hvenar sem er :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 18:33:58 / linda

Læri læri

Jabbs maður gerir lítið annað þessa dagana en að læra, ekki gaman. Er buin í einu prófi, skila ritgerð á morgun og á þá eitt próf eftir.

En annars er allt fínt að frétta. Við Helgi vorum bara í kærustuparaleik  og barnlaus um helgina, sem hefur ekki gerst lengi,þ.e barnlausi parturinn, erum alltaf eins og við séum nýbyrjuð saman, sem er bara æði, reyndar var hann að vinna og ég að læra á laugardaginn, en á sunnudaginn höfðum við það bara gott, lágum í leti upp í rúmi til´hádegis fórum upp í hesthús og kíktum svo austur til Gumma og Evu, sem er alltaf gaman. Annars var svolítið öðruvísi dagur hjá okkur á föstudaginn, við vorum nefnilega að passa frænkur hans Helga, gaman að fá að vera með tvær stelpur til tilbreytingar. Helga fannst nú ekkert mál með þessa eldri, en hin er svo lítil að maður getur ekkert sagt henni að fara bara að sofa :!: Karlmenn, eins gott að við eignumst ekki stelpu hún myndi komast upp með all!!! Þannig að ég sagðist skyldi sjá um litlu og hann þa eldri. Það gekk glimrandi vel allt, ég setti litlu í rúmið sitt og sagði henni að fara að sofa, Helgi sagði þeirri eldri að fara að bursta tennurnar og var að aðstoða hana við það, ég bennti honum á að hann þyrfti að greiða hárið á henni, hefði viljað taka mynd af svipnum á honum, frænkann allavega rétti honum bursta og hann byrjaði, eftir smá stund var allt fast, þannig að ég var svo góð að bjóðast til að hjálpa honum :D En gaman að fá að koma og passa, skemmtum okkur mjög vel, ég var reyndar að klára ritgerð restina af kvöldinu, þannig að það var ekkert pössunarpartý hjá okkur.

Það alveg bjargaði gærdeginum að það kom póstkona með óvæntann pakka til mín :lol: Hún elskuleg systir mín sendi mér semsagt afmælisgjöf frá Akureyri, var svo gaman að fá pakka!!!en hún gaf mér svakalega flottan kjól. Er með algjöra kjóladellu, og hann er bara ógó flottur!

Takk eskan kissi þig fyrir þegar ég sé þig næst.

Er búin að setja inn nokkrar myndir frá Köben ballinu sem ég fékk hjá henni Fríði minni, takk eskan, skal vera með myndavel næst ;)

Rændi þessu frábæru hugleiðingum hjá Ástu, er svo margt til í þessu og margt sem á við hjá mér.

Kannski

 

Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið svo við kunnum að vera þakklát þegar við loksins hittum þann sem hentar okkur.

Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast.

Kannski er besti vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burt og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar.

Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt þangað til við höfum mist það en það er líka sagt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst það.

Það er eitt að gefa einhverjum alla okkar ást, tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum fyrir ást. Bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta.

Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður, klukkutíma að láta sér líka vel við einhvern, einn dag að verða ástfangin af einhverjum, en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum.

Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa? Vegna þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ekki fara eftir útliti, það getur blekkt. Ekki fara eftir auðæfum, þau geta horfið. Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til þess að brosa.


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 09:32:13 / linda

Takk kærlega

Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar, öll sms-in og allar hringingarnar í gær. Var alveg frábært, var orðin aum í eyranu þegar ég fór að sofa í gær.

Fékk líka frábæra afmælisgjöf frá leikskólanum, fekk silfur armband alveg eins og mig langaði svo í :D. Annar ætlum við Helgi að halda eitt helgarinnar afmælispartý í sumar, enda bæði 30 ára á árinu.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 10:59:55 / linda

Afmæli

Maður á nú afmæli í dag, er bara kominn á fertugsaldruinn ! En þar sem mér finnst aldur vera afstætt hugtak, er ég ennþá bara ung.

En samt merkilegt að vera orðin 30 ára!

En annars kom maður frá 'utlöndum í gær, var bara rosalega gaman. Segi meira frá því seinna og set inn helling af myndum frá ballinu sem var bara geggjað!


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.04.2007 17:27:17 / linda

Margt að gerast.

Jabbs það er alltaf eitthvað í gangi hjá okkur. En annars erum við samt búin að hafa það ofsalega gott það sem búið er af páskunum. Helgi var að sjálfsögðu að vinna á fimmtudaginn, þannig að ég skellti mér bara í kaupstaðinn með honum. Við mamma fórum bara að versla og dunda okkur, keypti töffaraskó á litlu prinasana, var mikið búið að biðja um skó eins og Brynjar á. Við fórum svo til Guggu og Jóa að knúsa hann Óla minn smá, hann var bara í svaka stuði og vildi ekkert fara að sofa, bara vera í stuðinu frammi. Ég fékk samt smá tremma fljótlega eftir hádegi, Brynjar hafði nefnilega fengið að sofa hjá vini sínum i bænum, hann hafði svo hringt um morguninn og spurt hvort vinurinn fengi að sofa hjá okkur á Selfossi um kvöldið, þar sem við vorum að fara í matarboð þá var það ekki hægt, þannig að ég segi honum að ég sæki hann bara þegar ég væri búin að snúast. um eitt fer ég að hringja í vininn, þá svarar aldrei þannig að mér datt allt í einu í hug að hringja heim á Selfoss og Brynjar svarar!! Fékk nett sjokk, við bæði í bænum og Brynjar kominn austur, þá hafði mamman misskilið eitthvað, þau að fara í bíltúr og dettur í hug að skutla Brynjari bara heim, hefði nú hringt fyrst, en svona er þetta bara. Þannig að ég byrja að hringa í alla sem ég vissi að væru að fara í bæinn og enginn á leiðinni fyrr en um kvöldið, það vildi svo til að mamma litlu guttana var í afmæli á Selfossi með strákana og var svo að koma með þá til okkar, þannig að Helgi hringdi í hana og bað að kippa Brynjari með, sem var ekkert mál, var ekkert smá fegin að þetta hafi reddast :S

En við fórum allavega í matarboð til Kristínar og Begga og fengum svaka gott hangikjöt og meðlæti.

Í gær tókum við túristatúr. Við keyrðum með nesti og nýja skó upp á Laugarvatn, Geysi og Gullfoss. það var voða gaman að skoða þetta allt saman. Strákarnir skemmtu sér allavega konunglega. Helgi og strákarnir fóru svo út á völl í fótbolta þegar við komum heim,  en ég ætlaði að sjá um hesthúsið, þegar ég var þar tók ég eftir því að hún Steinunn ( folaldið okkar) hagaði sér e-ð skringilega, var krafsandi og stappandi með afturlöppunum og alltaf að leggjast niður og reyna að vellta sér. Ég hennti þeim  strax öllum út í gerði og rak hana til. Helgi kom svo upp í hesthús og var hringt í doktorinn. Hún var semsagt með hrossasótt. Hún var svo sprautuð, fékk hrossasóttarlyf og syklalyf, því hún var með hita og svo olíu til að éta morguninn eftir. Helgi fór svo upp í hesthús fyrir allar aldir í morgun að athuga með hana, þá var hún öll að hressast, ekkert  smá gott að sjá hana hressa :D Hefði verið mikil sorg ef hún hefði drepist, sem þau gera ef þau eru ekki látin hreyfa sig strax og fá sprautu hjá doksa

En erum bara búin að hafa það næs í dag, bakaði köku sem var borðuð í kaffinu. Svo verður bara páskaeggjaát á morgun, drengirnir að drukkna í eggjum eins og vanalega, Brynjar vann svo páskaegg númer 7  frá Nóa Sírius í leik hjá Kjarnanum, í viðbót við öll hin, brosti sko út að eyrum þegar hann tók við því áðan.

Gleðilega páska til allra


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan
Leitarbox